Ferð Geirfuglsmanna ásamt spúsum sínum til Manchester verður seint talin venjuleg fótboltaferð. Þessi ferð var óslitinn sigurganga frá upphafi til enda. Reyndar ruglaðist limmósíu bílstjórinn sem átti að skutla okkur á flugvöllinn á árum og hélt að hann ætti að ná í okkur 11.apríl 2009. En það reddaðist og við mættum á flugvöllinn á réttum tíma. Það dugðu ekkert minni sæti undir þennan hóp heldur en Saga Class enda biðraðir ekki ofarlega á vinsældalista sexmenningana. Óli, Haukur og Stjáni fóru að sjá leik Bolton og West Ham á laugardeginum. Stór e-mail vinur Stjána Guðni Bergsson hafði reddað þeim miðum. Óli og Stjáni komust að því að leikurinn átti að byrja klukkan 15:00 en gleymdu að segja Hauk það sem hélt að leikurinn átti að byrja klukkan 14:00. Þeir félagar voru mættir tímanlega á völlinn og fóru beint í miðasöluna og sögðu Guðni Bergs í gegnum glerið og þrír miðar komu út um hæl. Þá var farið á stuðningsmannakeiluhöllina og drukkið í sig stemminguna. Klukkan 13:40 er ákveðið að fá sér sveittann breskan hamborgara en Haukur er orðin öðruvísi en hann er undir venjulegum kringumstæðum en segir fátt, hann lítur oft útum gluggann og stendur oft upp og lítur í allar áttir, svo þegar borgararnir koma klukkan 13:55 og við byrjum að borða bregst þolinmæðin hjá Hauk og hann stendur upp og hreytir útúr sér "ÆTLIÐI BARA AÐ SJÁ SEINNI HÁLFLEIK" þetta var með fyndari atriðum í ferðinni. Haukur róaðist þegar hann komst að því að leikurinn átti ekki að byrja fyr en eftir klukkutima. Við röltum síðan fljótlega á völlinn og sáum ágætis fótboltaleik, Bolton skoraði 3 mörk en tvö voru dæmd af þannig að leikurinn endaði 1-0 fyrir Bolton og eygja þeir en von um að halda sér í deildinni. En sunnudagurinn rann upp og spenningurinn stigmagnaðist enda stórleikur framundan Manchester United-Arsenal. Var farið tímanlega af stað og komið við á Trafford barnum fyrir leik þar sem alveg mögnuð stemming var, þar var sungið mikið og mikið fjör á öllum. Einum og hálfum tíma fyrir leik vorum við komin í sætin okkar sem voru á besta stað mjög nálægt varamannabekkjunum. Freddy rauði heilsaði uppá okkur og var hann í góðum gír. Fyrri hálfleikur var fjörugur og voru Arsenal ögn skárri en Van der Saar sá við þeim en Manchester United áttu sína spretti líka en inn fór boltinn ekki og staðan því 0-0 í hálfleik. Seinni hálfleikur byrjaði með látum og fljótlega skoraði Arsenal mark með hendinni sem var látið standa og fjögur þúsund geðsjúklingar frá London trylltust af fögnuði en sá fögnuður átti eftir að reynast skammvinur. Manchester United fékk réttilega dæmda vítaspyrnu sem besti knattspyrnumaður heims í dag Ronaldo skoraði úr og gríðarlegur fögnuður 71 þúsund stuðningsmanna Manchester United braust út og stemmingin á vellinum var orðinn allsvaðaleg. Þegar um tuttugu mínútur voru eftir af leiknum fengu Manchester United aukaspyrnu á ákjósanlegum stað og allir bjuggust við að Ronaldo myndi taka hana en Owen Hargreaves hljóp að boltanum og skaut beint í hornið MARK og staðan orðin 2-1. Fögnuðurinn á vellinum var gríðarlegur, þvílíkur leikur, þvílík stemming. Svo hófust svaðalegar lokamínútur og að lokum flautaði dómarinn til leiksloka og Manchester United komnir með aðra höndina á bikarinn. Á leiðinni útaf vellinum og alla leið að Trafford barnum var stanslaust sungið undir dyggri stjórn Magnúsar Gylfasonar sem hreinlega missti sig í fagnaðarlátum og hélt uppi söngvum eins og Viva Ronaldo og he goes by the name of Wayne Rooney og mörgum fleiri lögum. Englendingarnir kunnu vel að meta framlag Magnúsar og tóku undir með honum. Svo var farið á hótelið og áttu sumir auðveldara með komast niður á jörðina en aðrir. Um kvöldið var farið á ónefnan ítalskan veitingastað sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir það að þetta átti og mun hafa áhrif á líf sexmenningana til æviloka að vísu mun meiri áhrif á suma en aðra. Þegar okkur var vísað til borðs þá fóru sexmenningarnir að taka eftir að engin annar en snillingurinn og einn leikjahæsti leikmaður Manchester United sjálfur Ryan Giggs sat á snæðingi á borði við hliðina á okkar borði. Það fór að myndast hljóðlegur múgæsingur hjá hópnum og matseðlarnir voru eitthvað sem engin af hópnum spáði í fyrsta korterið. Ryan Giggs sat þarna með konunni sinni, foreldrum og tengdaforeldrum. Þetta kvöld var í rauninni lyginni líkast og ástandið á sumum úr hóp sexmenningana jaðraði við geðtruflaða sögupersónu eftir Alfred Hithcock. En Giggs tók þessu öllu saman með jafnaðargeði og tók sexmenningana opnum örmum og flassið dundi á silkimjúka húð hans. Magnaðasti sunnudagur í lífi hópsins var senn á enda og sofnuðu flestir með bros á vör. Lokadagurinn rann upp og farið var í skoðunarferð um Leikhús Draumanna og er það alltaf jafn spennandi og fróðlegt. Borðað var á Red Cafe, sumir misstu sig en eina ferðina í Megastore. Svo eyddi hópurinn deginum á mismunandi vegu, sumir fóru í Trafford Center aðrir í indverskt höfuðnudd enda margt hægt að gera í líflegustu og skemmtilegustu borg evrópu Manchester. 
Það þarf engan Einstein til að sjá það að leikhús draumanna í Manchesterborg er besta leikhús í heimi. Alltaf þegar á reynir sýna strákarnir hans Ferguson hvað í þeim býr og það sást svo sannarlega þegar þeir tóku "hið léttleikandi " lið Arsenal og niðurlægðu það í gær á Old Trafford. Það sást alveg frá byrjun í hvað stefni og 4-0 sigur var síst of stór. Bikarkeppnin er alltaf jafn skemmtileg og hefði verið gaman að fá Liverpool í næstu umferð en því miður fyr þá þá töpuðu þeir fyrir trésmiðum,járnsmiðum, sjoppueigendum, leigubílstjórum og hárskerum frá Barnsley sem er 72.000 manna bær í suður Yorkshire héraði á mið Englandi. En þeir verða bara í öðru þegar næsta umferð verður leikinn. Þetta er svona svipað og ef trillukarlar frá Kópaskeri myndu slá FH útúr bikarnum hérna á klakanum.
Mikill fjöldi lægða við Íslandsstrendur á umliðnum vikum og mánuðum hefur tæpast farið framhjá neinum. Samkvæmt upplýsingum frá Einari Sveinbjörnssyni veðurfræðingi skýrist þetta af því að svonefndur kuldapollur, þ.e. staðurinn þar sem mesti háloftakuldinn ríkir hverju sinni, liggur óvenjunálægt landinu um þessar mundir. Að sögn Einars hefur háloftakuldinn yfir Grænlandi verið meiri og nær Íslandi síðustu mánuði en mörg undanfarin ár. Hins vegar sé tíðarfarið nú ekki ósvipað því sem var nokkra vetur í kringum 1990.
Aðspurður segir Einar það nánast tilviljun hvar þessi átakapunktur í háloftunum lendi hverju sinni. Bendir hann á að sum árin sé mesti háloftakuldinn yfir miðju Kanada, önnur ár lendi hann yfir Síberíu eða nálægt Alaska og stundum sé hann yfir Svalbarða. Kuldapollurinn hafi hins vegar ráðandi áhrif á vetrarveðráttuna á stóru svæði í kringum hann.
Spurður hvort hægt sé að segja fyrir um staðsetningu kuldapollsins ár hvert segir Einar menn vissulega reyna það, en með misjöfnum árangri þó. Bendir hann á að oft raði stóru línurnar á norðurhveli sér upp snemma vetrar, í nóvember og desember, í ákveðið kerfi sem síðan haldist út veturinn. Stundum brotni þetta hins vegar upp og raði sér upp á nýtt um miðjan vetur og þá oft með skömmum fyrirvara.
Aðspurður hvernig langtímaútlitið sé bendir Einar á að Evrópska reiknimiðstöðin (ECMWF) hafi í þriggja mánaða spá sinni fyrir janúar til mars spáð því að hérlendis yrði lægðagangur með úrkomu ofan meðallags og hita um eða yfir meðallagi. „Ef veðráttan tekur ekki miklum breytingum það sem eftir er tímabilsins þá er þetta nú alveg í áttina.“
Ár rottunnar er gengið í garð í Kína og óskar áhöfnin á Geirfugli öllum kínverjum til sjávar og sveita innilega til hamingju með árið.
En af Geirfuglsmönnum er allt gott að frétta. Haukur hefur sökkt sér inn í forsetakosningarnar vestanhafs og er hann ákafur stuðningsmaður Obama enda er Haukur af afrískum ættum og talið er að þeir félagar séu skyldir. Atvinnuuppstokkarasérfræðingurinn Hafsteinn Kjartansson er með annan fótinn á bensíngjöfinni á nýja Nizzaninum sínum þessa daganna og fær hann ekkert stoppað. 
En að máli málanna, línuveiðum, miklar og langvarandi brælur hafa sett svip sinn á veturinn en þokkalegt fiskerí hefur verið þegar gefur og höfum við verið að fá þorska sem eiga ekki að vera til í sjónum en langskólagengnu mennirnir í Reykjavík segja það og við eigum bara að trúa því og við gerum það, við höldum að þessir golþorskar séu litlir karfar. Hvenær skildi verða ár þorsksins verða á Íslandi?
Jæja þá er jólabloggfríið búið og mál til komið að halda áfram. En á meðan rithöfundur síðunnar er að læra á takkaborðið upp á nýtt lætur hann flakka hér gamalt blogg sem hann fann í handraðanum.
Ég var að horfa á X-Factor áðan og þar komst færeyingurinn Jógvan áfram sem er kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir það að maðurinn heitir Jógvan og er færeyingur. Það búa að ég held 50 þúsund manns í Færeyjum og væntanlega eru helmingurinn af þeim konur sem þýðir að 25 þúsund karlmenn búa í færeyjum. Þetta er svona frekar auðvelt reikningsdæmi fyrir meðaljón eins og mig. En af þessum 25 þúsund karlmönnum heita örugglega helmingurinn af þeim Jógvan. Ég byggi þessa útreikninga mína á því að ég hef tvisvar sinnum komið til Færeyja. Í fyrra skiptið kom ég til Fuglafjarðar á Grindvíking GK fyrir allmörgum árum til þess að landa loðnu og að sjálfsögðu klæddi maður sig upp og fór og skoðaði mannlífið í Fuglafirði. Eftir að hafa farið á veitingastað og borðað steiktan ufsa og franskar sem kokkurinn Jógvan eldaði fór ég til Rúnavíkur með strákunum á Grindvíking til þess að versla í heildverslun. Leigubílstjórinn sem skutlaði okkur þangað hét Jógvan. Þegar ég kom inn í heildversluninna sá ég stimpilklukku þar sem 12 nöfn starfsmanna voru tveir kvennmenn og tíu karlmenn og fimm af þeim hétu Jógvan. Mér fannst þetta frekar fyndið að svona margir hétu þessu nafni. Svo þegar við vorum að fara frá Fuglafirði og löndunargengið var að tía sig frá borði þá datt mér í hug að kalla hátt "hey Jógvan, hvað er klukkan" og viti menn, helmingurinn snéri sér við og sagði mér það. 
Svo nokkrum árum seinna fór ég á Ólafsvöku. Maður byrjaði á því að fara á barinn í Norrænu þegar við lögðum af stað frá Seyðisfirði og hver annar en Jógvan var að afgreiða á barnum. Ég gisti á farfuglaheimili á meðan Ólafsvakan stóð yfir og auðvitað var Jógvan farfuglaheimilisstjóri. Svo eina nóttina lenti ég í rosa partíi og mig syfjaði alveg svakalega og sofnaði í sófanum og þegar ég vaknaði var búið að breiða yfir mig teppi. Þegar ég vaknaði og fór út þá var mér litið á útidyrahurðina og þar stóð á hurðinni Jógvan og Anna, ekki veit ég hvort þessi Anna var íslensk en heimilisfaðirinn hét Jógvan. Það væri gaman að vita það hver hafi breytt yfir mig teppið, ég kemst sennilega aldrei að því. Svo lendum við félagarnir í því að gamall ekkjumaður bauð okkur heim til sín. BrimklóarSvenni var með Hot and sweet flösku með sér sem gamli ekkjumaðurinn stal af honum og lét sig hverfa og skildi okkur eina eftir í húsinu sínu. Þá rak ég augun í að ég held rafmagnsreikning og þar stóð Jógvan. Daginn eftir sáum við Jógvan gamla vel við skál í miðbæ Þórshafnar kolsvartan um munnin með hot and sweet flöskuna hans BrimklóarSvenna og var hún nánast tóm. Allir þessir Jógvanar sem ég hef hitt í Færeyjum segja mér það að 12.500 færeyingar heita Jógvan og einn af þeim er í X-Factor
Óli Björn Björgvinsson er fertugur í dag. Óli hefur alið manninn víða á sinni hnitmiðuðu ævi. Hann fór ungur að hafa áhuga á ýmiskonar veiðum enda ættaður frá Grímsey og átti ekki langt að sækja það. Hann er svo stoltur af uppruna sínum að hann er með mynd af konungi Grímseyjar Willard Fiske á sérútbúnu skáknáttborðinu sínu. Óli gerði garðinn frægann í Verslunarskóla Íslands og las mikið enda áhuginn mikill, hann hætti í Verslunarskólanum þegar hann var farinn að drekka rjóma með pulsunum og tengdi það að hann væri að því kominn að lesa yfir sig. Þetta var hárrétt ákvörðun og lá leiðinn í Stýrimannaskólann og þar fann hann sig og vissi að hann væri á réttri hillu í lífinu. Sjómennskan átti hug hans og hjarta og stundaði Óli loðnu og netaveiðar. Óli átti Vídeóleigu um tíma og var mikið í Los Angeles að semja við Warner Bros og fleiri kvikmyndaframleiðendur um einkarétt á útleigu á kvikmyndum og oftar en ekki náði hann afar hagstæðum samningum og var vídeóleigan hans oftar en ekki sú eina með allra nýustu myndirnar. Í dag gerir Óli út línubeitningarbátinn Geirfugl GK 66 og er formaður körfuknattleiksdeildarinnar. Óli skrapp norður yfir heiðar og náði sér í kvonfang Guðrúnu Jónu sem er frá Akureyri og eiga þau fjögur börn. Guðrún varð fertug á árinu og það skemmtilega vill til að þau voru líka þrítug á sama ári fyrir tíu árum. Strákarnir hans á Geirfugli eru gríðarlega ánægðir með Óla enda Óli afar heilsteyptur maður og laus við allt rugl. Áhöfnin á Geirfugli óska Óla innilega til hamingju með þessi merku tímamót. Óli og Guðrún halda um á þessa áfanga í paradísinni Manchester.
Haukur Guðberg Einarsson er 35 ára gamall í dag. Haukur hefur marga fjöruna sopið og hefur ekki kallað allt ömmu sína í gegnum tíðina. Á unga aldri dreymdi Hauk um að verða sjómaður. Um 10 ára aldur fór hann að dreyma að hann væri staddur á bát sem hét Ögmundur og væri á dragnót í Faxaflóa á kolaveiðum, þennan draum dreymdi hann nánast á hverri nóttu í mörg ár. Hann var orðinn svo hugfanginn af þessum draum að þetta var farið að stjórna lífi hans. Hann hugsaði um fátt annað en kolaveiðar í Faxaflóa. Þegar hann var kominn með aldur þá var það hans fyrsta verk að ráða sig á dragnótabátinn Þröst RE. Í 20 ár gerði hann alsæll að kola í Faxaflóa og fannst honum stundum að hann væri í himnaríki svo gaman fannst honum. Síðastliðnu mánuði hefur hann fundið sig æ betur í nýjum farvegi á línuveiðum og rær nú á Geirfugli GK. Haukur er hvers manns hugljúfi og það geislar af honum hvert sem hann hefur komið. Hann kynntist konunni sinni ungur að árum og náði að einungis að barna hana tvisvar sökum annríkis við kolaaðgerð. Haukur er sannkallaður þúsundþjalasmiður og hefur hann aldrei málað sig útí horn heldur hefur hann málað heilu byggingarnar, leikið í tónlistarmyndböndum, reist upp gifsveggi og svona mætti lengi telja. Hann er líka afar klár í rafmagni og eyðir hann mikið af frítíma sínum með rafmagnsfræðingnum og vini Einar 12 volt frá Hafnarfirði. Hittast þeir félagar oft á kvöldin og rífa í sundur altaritora og setja saman aftur og það er oft glatt á hjalla hjá þeim félögum. Haukur er vinmargur enda afar félagslyndur og stefnir hátt í pólitík, hann er framsóknarmaður af guðs náð og er með mynd af Halldóri Ásgrímssyni á náttborðinu hjá sér. Haukur er í miklu sambandi við Halldór og er Halldór að hjálpa honum að komast til valda í framsóknarflokknum. Áhöfn og útgerð Geirfugls GK óskar Hauki innilega til hamingju með árin 35.
Hér kemur önnur sagan af þeim félögum Hawk og Chris. Af virðingu við þessa heiðursmenn verður sögunöfnum þeirra haldið og er endalaust hægt að segja sögur af þessum félögum enda sjaldan lognmolla þar sem þeir tveir eru samankomnir. Öllum nöfnum hefur verið breytt sem og staðháttum. Þetta er sönn saga enda erfitt að ljúga upp á þá félaga.
Hawk og Chris höfðu báðir reynslu af lúðuveiðum. Höfðu þeir báðir verið á Grandviking GK á lúðuveiðum fyrir allmörgum árum eins hafði Chris verið á Fireisland-Hjalti GK með pabba sínum á lúðuveiðum. Svo þeir höfðu dágóða reynslu af því að innbyrða stórlúður. Þeir eru báðir núna á Garbird GK og þegar Olav útgerðarmaður sagði þeim að Garbird GK yrði gerður út á lúðuveiðar þá lifnaði yfir þeim. Minningarnar frá því þegar þeir voru á lúðuveiðum rifjuðust upp og komust þeir að að þessar minningar virkuðu mjög ferskar og töldu þeir sig því vel í stakk búna til að fara á lúðuveiðar. Lögðu þeir því af stað á lúðuveiðar með tvo haldapoka af nesti og nokkra geisladiska með taktfastri danstónlist. Þeir voru með nokkrar handfærarúllur með sér til að fiska beitu á lúðukrókana. Haldið var beint í suðvestur frá miklum reyk sem talið er að komi frá saltverksmiðju. Hawk og Chris voru mjög ferskir og leið þeim vel enda höfðu þeir báðir átt skemmtilegt kvöld með konunum sínum kvöldið áður. Þeir höfðu heyrt að það boðaði gott að eiga innilega stund með konunum sínum áður en haldið yrði á lúðuveiðar. Það kjaftaði af þeim hver tuskan og ryfjuðu þeir upp gamla tíma og hlógu, þeir voru búnir að bralla mikið saman um ævina. Þegar á ætluð lúðumið var komið var kominn haugasjór og voru þeir heppnir að hafa verið með beitt þar sem ekkert skakveður var og var ákveðið að línan skildi lögð og síðan var ákveðið að fara á grynningar sem voru þarna rétt hjá þegar lægði og ná í beitu með handfærarúllunum. Eftir nokkra tíma lægði og var því haldið af stað á grynningarnar. Gekk vel að ná í beitu, var þetta ufsi. Þeir voru í mestu makindum að týna ufsan af og skera hann í hæfilega beitustærð þegar ein rúllan skyndilega byrjaði að láta skringilega, hífði hún rólega og svo rann snöggt útaf henni. Þeir litu á hvorn annan og sögðu að þetta hlyti að vera stór fiskur og spáðu svo ekkert í því meir, Hawk hélt áfram að skera beitu en Chris náði aðra ífæruna ef þetta skildi vera lúða sem þeim fannst ólíklegt þar sem þeir voru bara á 26 föðmum. Chris týndi ufsana af hinum rúllunum og Hawk skar beituna. Svo litu þeir á rúlluna og sáu að hún var alveg að koma upp. Grípum nú í samskipti þeira félaga. Chris: Þetta er svakaleg lúða. Svo greip hann ífæruna sem hann hafði náð í og náði að reka hana í fyrstu atrennu í hausin á henni, lúðan var alveg trítilóð og lét öllum íllum látum. Hawk: þetta er örugglega ekki nógu vel í henni til að hífa hana inn. Chris: Nei þú verður að ná í hina ífæruna og setja hana líka í hausin á henni. Chris var orðin mjög æstur og orðin þreyttur í höndunum þar sem lúðan reyndi allt sem hún gat til að sleppa, það eina sem komst að hjá honum var að ná henni innfyrir. Hawk: Hvar er ífæran. Chris: Hún er. Svo fór hann að stama og hann mundi engin orð þar sem allir vöðvar líkamans þar á meðal heilans sameinuðust í að halda ífærunni í lúðunni. Chris breyttist í óþekkjanlegan mann og hann öskraði eitthvað úti loftið að ífæran væri einhverstaðar í andskotanum þarna og það reyndist rétt, Hawk fann hana og kom aðvífandi og kom henni kyrfilega fyrir í hausnum á lúðunni. Þeir hengdu kranan í hana og byrjuðu að hífa hana innfyrir, þetta var svaka skepna. Svo þegar sporðurinn var rétt kominn innfyrir rifnaði ífæran úr og lúðan small á dekkið. Þeir náðu henni. Þeir settust á lestarlúguna örmagna, þetta tók á. Þeir féllust í faðm og grétu af gleði. Þeim hafði ekki liðið svona vel í mörg ár. Innilega stundin með konunum hafði skilað sér, það fór ekkert á milli mála. Þeir viktuðu lúðuna og viktaði hún 155 kíló óslægð. Á leiðinni til baka á ætluðu lúðumiðinn var mikil værð yfir þeim og hlustuðu þeir á danstónlistina sem þeir tóku með sér og töluðu lítið. Svo eftir langa stund spurði Hawk: Chris hvað ertu að hugsa núna? Chris svaraði: Ég er búin að vera að hugsa um lúðuna. Já ég líka sagði Hawk. Hefur þeim félögum gengið vel að veiða lúðu og hafa þeir fengið 72 lúður á lúðukrókana sem viktuðu 2.8 tonn í einungis þremur túrum. En þessi sem þeir fengu á handfærin fer ekki úr minni þeirra það sem þeir eiga eftir ólifað. Olaf útgerðamaður er stoltur af að vera með svona menn á bátnum hjá sér enda er kærleikurinn í hávegum hafður hjá þeim þremenningum Hawk, Chris og Olav.   
Eftir langvarandi brælur djúpt suðvestur af landinu lygndi loks og þá var ekki til setunnar boðið og nú skildi halda af stað og prófa að leggja lúðukrókana. Laugardagskvöldið 26. maí mættu félagarnir Haukur og Kristján með grillaðan kjúkling og pulsur í poka og voru spenntir að fara á lúðuveiðar. Óli kom og kyssti strákana sína bless enda þykir honum afskaplega vænt um þá. Skiptu þeir stíminu á milli sín enda langt að fara og svo kom að því að línan skildi lögð og gekk það með eindæmum vel, þetta rann út. Lögnin heppnaðist vel. Svo eftir dágóða klukkutíma var byrjað að draga og gekk það eins og í sögu. Þeir voru ekki búnir að draga lengi þegar fyrsta lúðan leið dagsins ljós. Þeir peppuðust báðir upp og ráku ífæruna á kaf í hausin á henni og byrjuðu að hífa hana innfyrir og gekk það vel. Þetta er nú ekki mikið mál sögðu þeir og hlógu. Svo héldu þeir áfram að draga og gekk þetta eins og í sögu, það var eins og þeir félagar hefðu aldrei gert neitt annað um ævina en að stunda lúðuveiðar. Þeir lesa hugsanir hvors annars og vinna þetta eftir því. Þeir voru komnir með 9 stórar lúður eftir fyrsta daginn og þar af var ein sem var örugglega 150 kíló og var hún eins og laufblað í höndunum á þeim félögum svo auðvelt var fyrir þá að innbyrða hana. Þeir ákváðu að leggja sig í nokkra tíma en fyrst skiptu þeir grillaða kjúklingnum sem þeir keyptu af ungversku farandkassasöludömunni í Bónus á milli sín og rann hann ljúft niður, þeir hámuðu í sig kjúllann enda orðnir sársvangir, þeir höfðu gleymt sér í gleðinni og ekkert borðað lengi. Þegar þeir vöknuðu byrjuðu þeir strax að draga enda orðnir spenntir yfir því hvort þeir fengu fleiri lúður og sú spenna átti eftir að aukast þeir fengu 6 lúður í viðbót og voru hæstánægðir. Það var kominn kaldaskýtur og mjög lítið eftir af nestinu og héldu þeir áleiðis að landi en ákváðu að skaka aðeins á leiðinni í land. Slökuðu þeir rúllunum niður annað slagið á leiðinni heim og alltaf kom þorskur og ufsi til skiptis. Þeir ætluðu að reyna að vera komnir á skikkanlegum tíma í land en það reyndist þeim erfitt þar sem þeim fannst svo gaman að vera á handfærum, þar voru þeir á heimavelli. En svo komu þeir í land og voru þeir með um 700 kíló af lúðu, 300 kíló af þorski og 200 kíló af ufsa. Óli var mættur að taka á móti drengjunum sínum og var hæstánægður með þennann fyrsta lúðutúr á Geirfugli GK 66.
Þetta er sönn saga um handfæraróður tveggja vina. Einungis nöfnum þeirra sem og skipsnöfnum hefur verið breytt.
 Klukkan 3 að nóttu til miðvikudaginn 23 maí 2007 lögðu frændurnir, fermingabræðurnir og vinirnir Hawk og Chris af stað frá Grindavík í handfæraróður á Garbird GK. Reynsla þeirra af handfærum var af ólíkum toga. Hawk hafði verið á allmörgum handfærabátum á síðasta ári en lengst af var hann á Wenny GK. Hawk varð einn mánuðinn í fyrrahaust aflahæsti handfærasjómaðurinn á landinu og segir það bara eitt um þá reynslu sem hann náði sér í  á stuttum tíma. Hawk ánetjaðist handfærum strax í sínum fyrsta túr og fljótlega tók hann handfæri fram yfir allt í lífinu. Sökum gífurlegs áhuga á þessu veiðarfæri jókst reynsla hans mjög hratt. Chris aftur á móti hafði reynslu af allt öðrum toga en sú reynsla átti heldur betur eftir að koma honum til góðs í þessum túr. Chris stundaði handfæraveiðar með afa sínum vestur á fjörðum áður en hann fermdist og hann sat að því alla ævi. Rífa krókana úr, skipta um slóða sem og sökkur var eitthvað sem Chris gleymdi aldrei. Með þessar reynslur í farteskinu lögðu þeir félagar af stað í fyrsta handfæraróðurinn á Garbird GK. Fóru þeir beinustu leið í Skerjadýpið og slökuðu niður færunum. Urðu þeir strax varir og var reitingsafli af þorski, fengu þeir um sjö hundruð kíló um morguninn. Þá fór að draga úr veiðinni og Hawk vildi fara að kanna staði sem hann hafði veitt ágætlega þegar hann var á Wenny GK og oftar en ekki nuddaðist upp afli. Þegar líða tók á daginn var orðið frekar rólegt um að vera og aflinn orðinn tæp tvö tonn af þorski, fimmtíu kíló af smáufsa og ein ýsa. Skiptust þeir á að segja aulabrandara og fara inn í kaffi þangað til að þeir ákváðu að nú skildi annar þeirra leggja sig og Chris reið á vaðið og lagði sig þar sem veiðin var orðin frekar róleg. Eftir vænan svefn ræsti Hawk Chris og sagði að það væri kominn kaldaskýtur í Skerjadýpinu og hann væri kominn með stefnuna í átt að Reykjanesinu. Hawk lagði sig og Chris fékk sér kaffi og teygði úr sér. Fljótlega fór honum að leiðast og stoppaði og slakaði niður rúllunum. Ekki var fiskerríið uppá marga fiska, einn og einn þorskur annað slagið og fljótlega gafst hann upp og fór inn og athugaði með Hawk sem svaf værum blundi. Var sett á rólegt og þægilegt dól í átt að Reykjanesinu. Þegar þangað var komið voru færin sett niður og Chris fékk sér sæti á kari með loki sem var á dekkinu og var að troða Kodiak í vörina á sér þegar skyndilega byrjaði að marra í rúllunum og Chris hélt að það væri allt fast. En þær hífðu og sú fyrsta kom upp með þennan líka stórufsa á öllum krókum svo komu þrjár upp allar með ýturvaxinn ufsa á öllum krókum og saman flæktar svo kom síðasta rúllan upp með alla króka fulla af ufsa. Chris hljóp frammí og kallaði á Hawk. “Hawk ræs það er komið stórufsamok”. Hawk sem hafði farið langt inn í heim andanna svaraði “það er ekkert annað” og átti bágt með það að trúa þessu þar sem þetta var alveg í takt við húmorinn hjá þeim félögum. Chris hljóp aftur út upptjúnnaður og byrjaði að rífa ufsan innfyrir og reyna að greiða úr flækjunni. Eftir nokkrar sekúndur var Chris farið að lengja eftir Hawk og öskraði “það er allt í flækju hérna” hann kom upp og sá hvað var að ske og fór í gallann á innan við sekúndu. “Djöfull er gaman að vakna við þetta” sagði hann þegar hann sá að stórufsamok var brostið á “þetta er æðislegt” sagði hann og minningar frá því þegar hann var á Wenny GK og lenti í stórufsamoki mögnuðust. Þetta stórufsaskot stóð yfir í 15 mínútur og náðu þeir einu tonni í því. Svo fór að rökkva og ufsinn hætti að taka. Stóðu þeir félagar alblóðugir upp fyrir haus og hlógu, þetta fannst þeim gaman. Þeir kíktu oní lest og sáu að þeir voru komnir með þrjú tonn og voru alsælir með árangur dagsins og nú skildu þeir fara í land enda búnir að vera um tuttugu klukkutíma á sjó]]></description>
Hin hliðin á Kristjáni Ásgeirssyni
Fjölskylduhagir? Í sambúð með Ásu og við eigum tvær dætur, Anítu og Tinnu
Hvaðan ertu ættaður? Sunnan og vestan
Eru hjátrúafullur? Já stundum Uppáhaldssjónvarpsþáttur? Bold and Bjútífúl 
Uppáhaldsmatur? Flest það sem mamma og Ása elda 
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Old Trafford í Manchester 
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Rækta garðinn minn 
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Bíða eftir vorinu svo ég geti farið að rækta garðinn minn 
Helsti kostur? Duglegur
Helsti veikleiki? Á erfitt með að bíða    
Helsta afrek? Þegar ég hitti Ásu og svaf hjá henni tvisvar með þriggja ára millibili og úr varð tvær dætur
Mestu vonbrigði? Að geta ekki keypt Kodiak í Bónus Hvað fer mest í taugarnar á þér? Menn sem vinna með rassgatinu 
Hver er draumur þinn? Að Chistiano Ronaldo barni Ásu 
Hvað er mikilvægast í lífinu? Ása, Aníta og Tinna 
Hvað er mottóið þitt? Blákorn rúlar 